|
Markviss
Starfsmannaþróun er eitt mikilvægasta verkfærið til að þróa og bæta fyrirtæki. Til að mögulegt sé að mæta þörfum starfsmanna er nauðsynlegt að vinna góða þarfagreiningu. Markviss er aðferðafræði þar sem megin áhersla er lögð á að stjórnendur og aðrir starfsmenn vinni saman að þeirri uppbyggingu sem þörf er á. Markviss býður upp á einföld tæki sem fyrirtækin geta notað og sniðið að eigin þörfum. Með aðferðafræði Markviss er gengið úr skugga um að starfsmannastefna fyrirtækisins sé í takt við aðra þróun í fyrirtækinu.
Með notkun á Markviss fæst yfirlit yfir mannauð fyrirtækisins og hvernig hægt er að þróa hann áfram. Fyrirtækið þarf ekki að eyða tíma í að þróa sitt eigið kerfi heldur getur notað krafta sína í önnur verkefni.
Fyrirtækin geta hvort heldur sem er notað aðferðafræði Markviss á eigin spýtur eða fengið ráðgjafa sér til aðstoðar.
Fréttir
7.1.2009 - Norðurorka lýkur Markviss-verkefni
Fyrirtækið Norðurorka á Akureyri lauk á árinu við mjög ítarlega og vel unna þarfagreiningu. Afar öflugur stýrihópur, sem samanstóð af sjö starfsmönnum bar vinnuna uppi. Þessi hópur safnaði upplýsingum frá öðrum starfsmönnum fyrirtækisins, unnar voru starfslýsingar fyrir alla starfsmenn, starfagreiningar fyrir allar deildir auk þess sem allir starfsmenn tóku þátt í Air-Opera hugmyndavinnu. Í kjölfar verkefnisins var Norðurorkuskólinn stofnaður en Guðrún Björg Harðardóttir, starfsmannastjóri mun stýra fræðslustarfinu, með dyggum stuðningi fyrrgreindra starfsmanna úr stýrihóp.
29.5.2008 - Námskeið Markviss-ráðgjafa
Í síðustu viku var haldið námskeið í persónuleikaflokkun Jungs. Bent Niebling, guðfaðir íslensku Markviss-ráðgjafanna kom til landsins og kynnti þessi heimsfrægu fræði fyrir 22 manna áhugasömum hópi í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
Námskeiðið tókst afar vel. Það fór fram á móðurmáli guðföðursins, sem er danskur en var íslenskað eftir þörfum af Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, náms- og starfsráðgjafa Þekkingarseturs Þingeyinga. Skilningur og þekking á mismunandi persónuflokkum fólks, hvernig þeir vinna saman, styrkleikum þeirra og veikleikum er afar gagnlegt verkfæri í verkfærakistu ráðgjafans og mun án efa nýtast í komandi Markviss-verkefnum.
|